Hríseyjarskóli


Símanúmer grunnskólans 466-1763    Leikskólinn Smábær: 466-1782    Gsm-sími skólastjóra er: 891-7929

                          

Grunnskóli

Um skólann        Starfsfólk            Mentor         Matseðill

Á döfinni

Stundaskrár
Myndir
Skóladagatal
Frammistöðumat
Skólanámskrá
Eldri fréttir
Skólastefna Akureyrar

Akmennt
 

Leikskóli

DAGATAL MÁNAÐARINS
Fréttabréf mánaðarins
Skóladagatal
Foreldrahandbók
Dagskipulag
Námsskrá
Myndir
Fróðleikur
Gullkorn

 

 

 

 

 

 

 

3. maí 2012
Miðdeild hélt í gær veislu í matreiðslu. Hópurinn útbjó m.a. sushi, kjúklingasalat og tertur. Það var mikið borðað af góðum mat og glatt á hjalla. Hér má sjá myndir.

2. maí 2012
Hríseyjarskóli sigraði í skólakeppni 1. maí hlaups UFA. 83% nemenda skólans tók þátt í hlaupinu og hlupu nemendur 2 km í góðu veðri.
Nokkur leikskólabörn tóku einnig þátt og hlupu 400 m. Þetta er í fjórða sinn sem nemendur Hríseyjarskóla mæta með felsta þátttakendur og vinna bikarinn.

23. apríl 2012
Árshátíð Hríseyjarskóla var haldin á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta. Hún hófst með söng nemenda leikskólans. Þau sungu tvö lög fyrir gesti. Lagið Ég vil geta vaxið úr Ávaxtakörfunni og síðan röppuðu þau Allur matur. Næst á svið voru nemendur yngstu deildar. Þau léku leikrit um Skúla skelfi og óþekktabrögð hans í skólastofunni. Sem betur fer eigum við enga skelfi í okkar skóla. Miðdeild var með hæfileikakeppni og komu greinilega fram hæfileikaríkir nemendur sem sungu, röppuðu, sögðu brandarar og sýndu dans og léku vel sýn hlutverk. Alveg frábært atriði hjá þeim. Elsta deild sýndi leikritið um Sannleiksstólinn og hvað hann getur haft slæm áhrif. Miklir leikhæfileikar og gaman að sjá hvað allir lögðu mikið á sig. Að lokum tóku allir nemendur Hríseyjarskóla undir í fjöldasöng og sungu Vinalagið fyrir viðstadda. Boðið var upp á glæsilegt kökuhlaðborð og tóku viðstaddir vel til matar síns. Þetta var glæsileg skemmtun og nemendum til mikils sóma. Myndir hér.
Gleðilegt sumar og takk fyrir ánægjulegan vetur.
Starfsfólk Hríseyjarskóla.
 

17. apríl 2012
Skólablaðið Hrís 2012 verður gefið út í næstu viku. Blaðið er glæsilegt að vanda.
Árshátíð Hríseyjarskóla verður sumardaginn fyrsta kl 14. Boðið verður upp á glæsilegt kökuhlaðborð og skemmtiatriði frá öllum deildum. Allir velkmnir.

17. apríl 2012
Skólanefnd hefur frá árinu 2010 veitt einstaklingum og/eða stofnunum sem skarað hafa fram úr í skólastarfi viðurkenningar. Markmiðið er að vekja sérstaka athygli á því sem vel er gert og hvetja þá sem fyrir valinu verða til þess að halda áfram því góða starfi sem þeir eru að vinna og jafnvel gera enn betur. Viðurkenning er einnig staðfesting á að viðkomandi skóli/kennari/nemandi er fyrirmynd annarra á því sviði sem viðurkenning nær til. Nú er komið að því að leita eftir tilnefningum. Allir sem áhuga hafa geta tilnefnt. Frestur til að skila inn tilnefningum er er til 3.maí 2012. Hér er hægt er tilnefna.

13. apríl 2012
Það ríkir glaumur og gleði í Hrísey. Hér eru staddir 10 nemendur Kvívíkurskóla í Færeyjum ásamt kennurum og bílstjóra. Hópurinn kom til landsins á þriðjudaginn með Norrænu en var veðurtepptur á Seyðisfirði og komst því ekki til okkar fyrr en á miðvikudegi. Nemendur miðdeildar tóku á móti hópnum á bryggjunni og fylgdu þeim í Hlein þar sem þau gistu. Um kvöldið var erlendi hópurinn að koma sér fyrir og eyddi tímanum með vinum sínum frá Hrísey. Í gær fimmtudag fóru nemendur Hríseyjarskóla í gönguferð upp á ey með hópinn og fengu þau leiðsögn frá Steina Rjúpu um eyjuna, sögu og staðhætti. Eftir gönguferðina fór allur hópurinn í Tarsan leik í íþróttahúsinu og í sund á eftir. Þá stormaði hópurinn í vagnferð með Bróa um eyjunna og endaði daginn í Sæborg í bíó. Í dag föstudag stendur til að hópurinn skelli sér á skíði og fari í sund á Akureyri. Í kvöld sofa nemendur miðdeildar í skólanum ásamt vinum sínum frá Færeyjum og halda kvöldvöku og skemmta sér. Færeyski hópurinn heldur til Ólafsfjarðar á morgun og mun ferðast um landið fram á miðvikudag að þau halda heim á leið siglandi frá Seyðisfirði. Svona heimsókn gefur nemendum mikið. Þau styrkjast í tungumálum og verða meðvituð um að um allan heim eru krakkar eins og þau að gera  það sama. Vonandi að vináttan sem myndast haldist og þau haldi sambandi áfram. Myndir

10. apríl 2012
Það eru komnar nýjar myndir inn á myndasíðuna okkar.

30. mars 2012
Nokkur atriði úr sögu Hríseyjar er verkefni sem nemendur miðdeildar unnu í upplýsinga og tæknimennt. Helsti heimildamaður var Þorsteinn Þorsteinsson. Verkefnið má sjá hér á vinstri.

30. mars 2012
Vegna hækkandi eldsneytisverðs voru nemendur  mið- og eldri deildar fengnir til að hanna bíla úr endurnýtanlegum hlutum, eins og mjólkurfernum og cheerios kössum. Bílarnir voru látnir renna niður 85cm hátt skáborð og markmiðið að láta þá renna sem lengst.  Nemendur unnu í liðum og var samkeppnin veruleg. Lengst náðu Gabríel, Einar og Hermann með MacDonalds bílinn. Þeir uppgötvuðu fyrstir allra að best var að þyngja bílinn verulega. Margar áhugaverðar útfærslur komu fram og myndir birtar á vefnum.
Tveimur vikum seinna var áfram unnið með faratæki og nú fengu nemendur í hendur mótora,  hreyfla og rafhlöður. Nú uppgötvuðu nemendur að best var að hafa bílinn sem léttastann og erfiðast að láta hann fara beint. Reynir og Tanja hlutu sigurinn að þessu sinni með bíl sinn Durex. Myndir frá keppninni má finna hér.
Markmiðið er að halda áfram með þess konar vinnu eftir páska.

21. mars 2012
Nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna okkar. Myndir frá skíðaferð, athafnaviku, skapandi vinnu ofl. Þær má sjá hér.

19. mars 2012
Starfsfólk Hríseyjarskóla sat námskeið hjá Ingrid Khulman frá Þekkingarmiðlun. Námskeiðið fjallaði um hvernig hægt væri að efla liðsandann og styrkja vinnuandann á vinnustaðnum. Námskeiðið var mjög fróðlegt og skemmtilegt og þótti starfsmönnum skólans gott að fá fræðslu um málefnið.
 
16. mars 2012
Í gær var farið í skíðaferð grunnskólans. Farið var í Hlíðarfjall. Allir nemendur skólans fengu skíði eða bretti til að renna sér á. Segja má að það hafi ríkt gleði og glaumur í brekkunum. Nokkrir nemendur voru að stíga á skíði í fyrsta sinn en þeir hafi samt náð góðum tökum á tækninni og nokkrir fóru óhikað í diskalyfturnar að renna sér. Dagurinn var eftirminnilegur enda færið frábært og veðrið lék við okkur. Takk fyrir okkur.

12. mars 2012
Það eru nýjar myndir frá leikskólanum komnar inn á netið.

20. febrúar 2012
Myndir af vinnu nemenda í áhugasviðsverkefninu má finna hér.

17. febrúar 2012
Nú stendur yfir námsmat í Hríseyjarskóla. Það er ríkir glaumur og gleði í skólanum þegar prófin klárast á daginn en þá tekur við vinna í áhugasviðsverkefnum í tvær kennslustundir og svo hópverkefni tengt Hávamálum. Í áhugasviðsverkefnum er margt verið að bralla. Einn nemendi lærir Naví - tungumálið í Avatar myndinni. Annar er í módelsmíð og hópur saumur og hannar föt svo eitthvað sé nefnt. Það er almenn ánægja með verkefnin og nemendum finnst gott að fá frí frá hefðbundum námsbókum. Til stendur að sýna afraksturinn á foreldrakaffi á næstu vikum.

30.janúar 2012

Vikuna 28. janúar til 4. febrúar er Tannverndarvika og við í Smábæ ætlum að nota þessa viku til að fræðast um tennur, tannheilsu og hollt mataræði.  Við ætlum að gera ýmis verkefni og kynnast svolítið sögunni af þeim Karíusi og Baktusi.  Við bendum foreldrum á fræðsluefni varðandi tannvernd á www.lydheilsustod.is þar sem hægt er að skoða m.a. efni frá tannverndarvikum síðustu ára.  Áhersla vikunnar þetta árið er sykur og sykurmagn í fæði og munum við taka mið af því í okkar vinnu hér í leikskólanum.
Það er 1/2 starfsdagur í leikskólanum föstudaginn 3. febrúar og því opnar leikskólinn kl. 12:00 þann dag.
Með kveðju,
Börn og starfsfólk Smábæjar.


25. janúar 2012
Þorrablót Hríseyjarskóla var haldið síðastliðinn föstudag. Nemendur og kennarar nutu kvöldstundar saman. Nokkar myndir eru komnar inn á heimasíðuna. Sýnd voru leikrit frá yngsti og miðdeild. Elsta deild stírði fjölbreyttum og fjörugum leikjum.Kennarar skólans sýndu söngleikinn Stóru Ljót við mikinn fögnuð.  Hér má finna annál nemenda 2011.

20. janúar 2012

Ungmennafélagið Narfi útnefndi Einar Örn íþróttamann ársins 2011. Einar fékk viðurkenninguna fyrir að hafa sýnt dugnað og elju við æfingar og í keppni á árinu. Hann er einstaklega jákvæður og góð fyrirmynd annarra iðkennda. Einar hefur mætt á æfingar hjá UFA inn á Akureyri tvisvar – þrisvar í viku undanfarin ár. Einar tók þátt í Världsungdomsspilen í Gautaborg í sumar og fleiri mótum og náði bætingu í öllum greinum og  góðum persónulegum árangri. Nemendur skólans fengu að vera viðstaddir þegar Einar Örn fékk afhentan bikar frá félaginu fyrir frammistöðuna. Við óskum Einari alls hinst besta og vonum að hann haldi áfram á sömu braut.

19. janúar 2012
Búið er að setja inn nýjar myndir úr skólastarfi. Þar má sjá myndir af því þegar nemendur á miðstigi sýndu fyrstu drög að "Nokkrir viðburðir í sögu Hríseyjar" í íþróttahúsinu. Verkefnið er unnið í upplýsinga og tæknimennt. Einnig eru myndir af því þegar tröll verður til hjá yngstu deild Hríseyjarskóla. Verkefnið er tengt tröllaþema í íslensku og listgreinum. Myndir hér
Á morgun föstudag höldum við upp á bóndadaginn á viðeigandi hátt. Herrarnir okkar verða sendir út og látnir sanna karlmennsku sína og síðdegis borðum við þorramat og skemmtum okkur saman á Þorrablóti skólans.

9. janúar 2012
Gleðilegt ár og takk fyrir það liðna.
Skólinn hófst síðastliðinn miðvikudag. Skipulagsdagur var hjá kennurum og öðru starfsfólki Hríseyjarskóla á þriðjdaginn. Skoðuð var ný Aðalnámskrá grunn- og leikskóla og unnin verkefni tengd henni. Aðalgildi hennar eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Ákveðið var að hafa leiðarljós í skólastarfinu fram á vorið jákvæðan skólabrag, skapandi starf og hrós.  Hægt er að nálgast Aðalnámskrána á slóðinni; http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/nr/3953

1. desember 2011
Það eru komnar nýjar myndir inn hjá leikskólanum. Myndirnar eru af leikfangalausu vikunni, úr afmælisveislu og sitthvað annað. Sjá hér.

3. nóv 2011
Skipulagsdagur er á leikskólanum miðvikudaginn 9. nóvember frá klukkan 8 - 12.

31. okt 2011
Nú eru nemendur miðdeildar ásamt tveimur nemendum úr elstu deild og kennurum lagðir af stað til Færeyjar. Þau verða í Kvívík hjá nemendum grunnskólans og munu gista í skólanum. Heimsóknin er liður í norrænu samstarfsverkefni. Í vor munu færeyísku nemendurnir koma til okkar og taka þátt í skólastarfinu í Hríseyjarskóla. Við sem heima sitjum óskum þeim góðrar skemmtunar. 
Næstkomandi laugardag verður kökubasar á vegum foreldrafélagsins í Júllabúð. Basarinn opnar klukkan 13.
Matseðill fyrir nóvember er kominn inn.

28.okt 2011
Leikskólinn var að hlaða niður nýjum myndum frá sulludeginum, heimsókn slökkviliðsins og fleiri. Sjá hér.

13. okt 2011
Nýjar myndir komnar á vefinn okkar. Þar má skoða skemmtilegar myndir frá degi íslenskrar náttúru 16. september og úr útikennslu þar sem krakkarnir vinna í skúlptúrunum sínum, tálga og búa til snjóvirki.
Myndir hér.
Af leikskólanum Smábæ er það að frétta að tvö börn eru í aðlögun. Númi og Adam eru mættir og er þeim fagnað hjartanlega.
Á skipulagsdaginn fóru Hrafhildur og Inga í heimsóknir á leikskólana í Hörgárbyggð og á Svalbarðseyri og kynntu sér stefnur og starfsemi. Þær áttu frábæran dag og fengu fullt af góðum hugmyndum.

5. okt 2011
Í morgun fengum við góða gesti í Hríseyjarskóla. Orri og Gerður frá Landvernd komu og heimsóttu alla bekki og ræddu við nemendur um umhverfið og umhverfisvernd.

30. sept 2011
Búið er að stofna veffangið www.hriseyjarskoli.akureyri.is. Verið er að sameina heimasíður grunnskólans og leikskólans. Töluverð vinna er eftir en í framtíðinni verða fréttir og annað settar inn á sameiginlega heimasíðu Hríseyjarskóla.

8.sept 2011
Dagur læsis var haldinn hátíðlegur í Hríseyjarskóla. Nemendur skemmtu ferjufarþegum með upplestir á ljóðum og smásögum. Yngstu nemendur bjuggu til sögufljót.
Myndir hér.

5.sept.2011
Námefniskynningar verða haldnar í Hríseyjarskóla  miðvikudaginn 7. september.
Yngsta deild kl 14:30, 
miðdeild kl 15:15
elsta deild kl 16:00
 Um lestur

26.ágúst 2011
Skólaleikar 2011
Nú er þessari fyrstu viku skólaársins að ljúka. Nemendur hafa tekið þátt í skólaleikum 2011. Þar keppa nemendur í ýmsum óhefðbundum þróttgreinum t.d. að komast yfir geislavirka stöng, stígvélakast, boðhlaup, þriggjalappahlaup´og berjatínslukeppni. Einnig fóru þau í vitaferð og gerðu þar látbragðsleik og dönsuðu færeyskan hringdans. Allt er þetta gert til að hrista saman hópinn, bjóða nýja nemendur velkomna og gera lífið skemmtilegt. Myndir hér

19. ágúst 2011
Skóladagtal fyrir skólaárið 2011 - 2012 er komið á vefinn.

9. ágúst 2011
Skólasetnig Hríseyjarskóla verður mánudaginn 22. ágúst kl. 14:00 á sal skólans.
Kennsla hefst kl. 8:00 þriðjudaginn 23. ágúst.
Innkaupalistar fyrir 1. 2 og 3 bekk
Innkaupalistar fyrir 5. 6. og 7 bekk
Innkaupalistar fyrir 8. 9. og 10 bekk

8. maí
Sveitaferð
14. - 21. maí
Námsmat
17. maí
Uppstigningadagur (frí)

Atburðir úr sögu Hríseyjar
Ferðasögur nemenda